Eymi..bestur í heimi ??

Sælleeee..

24.06.2007 09:56:29 / burtur

málið dautt or is it?

er ég hættur að blogga?

» 4 hafa sagt sína skoðun

22.03.2007 00:05:23 / burtur

jev

jæja, ef nú er ekki kominn tími á færslu þá veit ég ekki hvað.

First thing's first, hr. Ingvason orðinn tveggja daga gamall...og fer að detta í þriggja daga eftir nokkra klukkutíma, óska Gingu og Gingva innilega til hamingju með kvikyndið.

Svo er maður kominn með vinnu, verð í chillinu í sumar, ég ætla að gefa ykkur vísbendingu;

Pósturinn Páll,
Pósturinn Páll og kötturinn njáll
sést of síðla nætur
seinn er ekki á fætur
lætur böggla og bréf í bílinn sinn

Jájá ég veit, ekki mest glamúr djobbið í bransnaum en þetta sleppur vonandi, temmilega borgað og fínn vinnutími, stefnir allt saman í gott golfsumar...ég er svoooo til. Ég get ekki beðið eftir sumrinu maður, vá hvað það verður ljúft.

Steini Hauks á ammæli í dag, heyrst hefur að hann muni taka í hundinn í tilefni dagsins, enda getur hann ekki verið þekktur fyrir annað. Til hamingju dreng.

Eitt annað í þessu, ný útvarpsstöð dottin inn, ég sem var orðinn vanur Rás 2, en þessi er þokkalega nett, Reykjavík FM 101,5 for the win. Það er alveg merkilegt hversu mikið sorp er á ljósvakamiðlum okkar íslendinga, það er annað hvort einhverjar kellingar að væla yfir klámvæðingu (þær þyrftu að fá Steina til að taka þær í hundinn) eða einhverjir hnakkar. PIRR PIRR PIRR. En, Reykjavík FM ætti að fiffa þetta.

 

ekkert nýtt annars? 


» 5 hafa sagt sína skoðun

13.03.2007 18:57:25 / burtur

Iðnaðarmenn, krabbamein í íslensku samfélagi

Já, ég er ekki lengi að koma með aðra færslu, ástæðan er einföld, Iðnaðarmenn.

Þeir eru nú nauðsynlegir blessaðir, þeir eru sérfræðingar á sínum sviðum og langflestir láta sín verk vel af hendi, ganga vel um húsið mans og eru kurteisir. En hvernig í andskotanum fá menn það út að það rukka 10þús kall fyrir að senda tvo menn til að mæla út fyrir handriði, sem tekur korter? Vill einhver segja mér það. Taxtarnir hjá þessum mönnum eru svívirðilegir og svo eru þeir sem vinna sjálfstætt að taka þetta undir borðið, gefa ekkert upp og fá þetta beint í vasann!

Ástæðan fyrir því að ég er að tjá mig hérna er ekki til þess ætluð að hrauna beint yfir iðnaðarmenn, heldur sérstaklega eitt fyrirtæki, JSÓ, eða Járnsmiðja Óðins. Þannig er að við ákváðum að fá nýtt handrið inná gang á heimili okkar. Við höfum samband við þetta fyrirtæki og fáum upp gefið hvað þetta myndi sirka kosta:
mamma: "hver er sirka kostnaðurinn á þessu?"
Maðurinn gefur upp verð á hvern meter og samþykkir það.

Svo kemur að uppsetningu, allir eru ánægðir með verkið og handriðið lítur einkar vel út, ekki spurning með það. Svo kemur að því að við fáum sendann reikning hingað heim. Þá kemur í ljós að verkið kostar nálægt 100% meira enn upp var gefið, en taka skal fram að þetta var ekkert "official" verð, heldur bara eitthvað sem Óðinn sjálfur gaf upp, þannig að við vorum alveg að búast við smá aukapening, en tvöföldun er svívirðilegt.

Mamma ákveður þá að hringja í JSÓ, kveðst virkilega ánægð með verkið, en segist þó hissa á reikningnum, enn er þó jafnframt tilbúinn til að greiða hann að fullu og spyr hvort það væri ekki eðlilegt að koma til móts við hana með því að fá að greiða reikninginn yfir 4 mánuði. 
Það virtist vera í lagi.

Það er komið að fyrstu greiðslu og kemur þá í ljós að við þurfum að greiða dráttarvexti, sem eru 25% á ársgrundvelli, af þessari ákveðnu upphæð! Svona nokkuð gerir mann brjálaðann.  

Við höfum verið að senda fyrirtækinu e-mail og reynt að fá skýringar á þessu öllu saman, en allt kemur fyrir ekki, reikningurinn stendur og í síðasta e-mailinu sem við fáum stendur:

"Við skulum hafa rétta viðskiptahætti og borga það sem við látum vinna fyrir okkur."

Ég spyr!

Eru ekki réttir viðskiptahættir þess eðlis að láta greiða það sem upp er gefið? En ekki gefa upp bara kostnað á efninu sjálfu og bæta svo seinna við uppsetningarkostnaði, framleiðslukostnaði og virðisaukaskatt.

Eru ekki réttir viðskiptahættir að gefa upp dráttarvextina þegar samið er um greiðslur yfir fjóra mánuði?

Ég hvet því alla sem lesa þetta blogg að skipta ekki við JSÓ og hvet ykkur að sjá til þess að foreldrar ykkar eða aðrir í kringum ykkur skipti ekki við þetta fyrirtæki. Svo skuluð þið muna að fara vel yfir allann kostnað með þeim aðila sem vinnur verkið fyrir ykkur, áður en vinnan hefst.
Ekki láta hanka ykkur á tækniatriðum

Neytenda-Eymi


» 6 hafa sagt sína skoðun

12.03.2007 22:42:59 / burtur

já, ég er flottur

hvað skal sagt látið? Ég hef ekki tjáð mig á síðu þessari núna í hva...einn og hálfa mánuð...sem er slatti. En ég meina, það er nú einu sinni þannig að þetta námsmannalíf mitt þessa dagana er ekki mikið frásögum færandi, ég gæti komið hérna inn einu sinni á dag og skrifað helling um ekki neitt, svona soldið eins og ingvi sveins. Þá væru flestar mínar færslur svona:

Hæ hæ og halló, dagbók

Ég svaf yfir mig í dag....aftur, ég veit, þriðja skiptið í þessari viku, en svona er þetta þegar maður vakir til klukkan 02:00 að glápa á Whose line í tölvunni. En já, fór í skólann, fór svo heim að læra, át, fór í bolta og fór svo uppí rúm að glápa á Whos line.

bless og takk, ekkert snakk

Þannig að þið sjáið að það er ekki mikið til að segja frá. En ég ætla samt ekki að tilkynna það að bloggið er dautt, þó svo að það sé komið ansi nálægt því. Ég læt vita um leið og eitthvað hresst gerist!


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.02.2007 17:21:13 / burtur

Ætlum við eitthvað að ræða þetta eða...

ok, ég hef nú verið að fylgjast soldið með sjónvarpi þessa daganna, sökum HM í handbolta. Ætlum við að ræða...
...hvað Lovísa er lélegur íþróttafréttamaður
...hvað Domínós auglýsingarnar eru lélegar
...hvað Orku-auglýsingarnar eru Hössalegar/lélegar.
...hvað vinstri skytturnar í þýska liðinu hvað voru miklir ÓGEÐIS þjóðverjar.
...hvað Dana leikurinn var mikið svekkelsis
...hvað Dana leikurinn var góður
...og hvað Dana leikurinn var mikið svekkelsis.

Tvennt í þessu.
Við strákarnir náðum ekki að klára bílinn fyrir keppnina og munum því ekki taka þátt í ár, ekki sáttur. En við vorum einfaldlega ekki nógu skipulagðir svo byrjuðum við bara aðeins of seint. Við stefnum bara á þáttöku á næsta ári.

Tvær fagrar yngismeyjar 22 ára í dag, Ásta og Elísabet.Til hamingju með það stelpur. Sem minnir mig á það, boðskortið mitt í kökuna virðist hafa týnst í pósti.

Ætlum við svo eitthvað að ræða slúður ársins?

Laters

» 5 hafa sagt sína skoðun

30.01.2007 21:00:51 / burtur

Ótrúlegt

Ég vill nota tækifærið og klappa fyrir íslenska landsliðinu.

*klappar*

» 3 hafa sagt sína skoðun

24.01.2007 22:54:57 / burtur

Strákarnir okkaaar....hreinasta, hreinasta afbraaagð!

Ertu að grínast hvað þeir voru flottir á móti frökkum og í leiknum áðan! Það er á svona stundum sem ég elska að vera Íslendingur...við erum svo óútreiknanleg að það er yndislegt...Eiður Smári, tók þarna kafla hjá Barca þar sem hann var MAÐURINN, núna fær hann ekkert að spila. Ætli að þetta sé ekki soldið satt hjá Óla Stef, við erum eins og veðrið.

Anywho, er að sitja rennismíðanámskeið þessa dagana, frekar skemmtilegt sko, okkur er semsagt kennd alveg basic atriði í rennismíð...renndum og fræstum öxul 8), svo eigum við að forrita einhverja vél sem fræsir og rennir eitthvað plastdrasl sem enginn á eftir að geta notað, gott mál. Svo gengur hönnunarkeppnisstannið....frekar hægt, ef ég á að vera hreinskilinn. Erum að detta í massa tímaþröng, en ég reikna nú með að við notum helgina eins og hún leggur sig í þetta.

Annars fátt í'essu, hmm...einhver sænsk hjón komu að mér síðustu helgi og spurðu mig hvort ég vissi um einhverja strippbúllu, samtalið var frekar súrt:
"Excuse, we are from England and we are...no I'm joking, we are from Sweden and we are looking for a...you know...nude club *gerir látbragð um stór brjóst*"
(btw. hversu slappur brandari var þetta hjá gaurnum í byrjun!)

ég svaraði:
"Oh OK!, I get it, because I'm the fattest guy around, then you assume that I don't have a girlfriend and therefore I know about all these places"

nei ég svaraði ekki svona...en stundum vildi ég óska þess að ég hefði gert það! Ég benti þeim bara á Vegas.

svo ætla ég að enda þetta á frumsömdum ljóðum...um byrgismálið

Byrgni eitri byrlað var
bundinn liggur nakinn.
Liggur dýrðar dildó þar?
Drottins nafni amen

Byrgnir = Gummi Jóns
ég veit að amen rímar ekki við nakinn :cry:


Byrgið býður uppá margt
bindisleik' og fleira.
Ef að þú i meðferð þarft
þarftu eitthvað meira?

Pískur, dildó, pía flott,
pík' um vininn leikur.
Téður Gummi fær ei tott
strauminn gellan eykur.


» 7 hafa sagt sína skoðun

16.01.2007 21:16:07 / burtur

Stræk túúúúú

Mættur aftur.

Allavega, vildi bara segja frá strike-kerfinu hjá okkur verkfræðipungunum.

Við vorum semsagt í dæmatíma í Varmafræði í gær og Þorsteinn var klárlega maður leiksins. Hann byrjaði á að segja yfir allann bekkinn að bræðslumark vatns væri 100°C, svo helti hann Kókómjólk yfir blöðin sín, svo fór hann að þræta við kennarann og aðra samnemendur sína um efni sem hann hafði rangt fyrir sér í. Þarna gerði hann 3 heimskulega hluti í einum tíma. Helgi skrifaði þá á blað:

Bræðslumark - Strike 1
Kókómjólk - Strike 2
Varmaflutningur (það er efnið sem hann var að þræta um) - Strike 3
Þú ert hér með rekinn úr tíma

Nú er þetta orðið að fastri reglu hjá okkur, þessi regla færist einnig yfir á MSN, ef þú ert í ruglinu, segir þrjá heimskulega hluti, eða lélega brandar...þá þarftu að sign-a þig út yfir daginn. Varðandi svona félagslega samkomu að einhverju tagi, þá gildir þessi regla líka þar...en refsingin er ekki enn kominn á hreint, líklegt er að þá þurfi viðkomandi að fara í eitthvað heimskulegt...eða úr einhverju þannig að hann líti heimskulega út...tilkynnt verður um þetta á síðu 866 í textavarpinu seinna í vikunni.

Að sama skapi er hægt að vinna sér inn anti-strike, þá þarftu að koma með eitthvað virkilega gáfulegt...eða virkilega fyndið. En þau gilda aðeins yfir daginn/tímann eftir því sem við á.

Ég mæli svo með að allir noti strike-kerfið einnig í sínu starfi eða námi. Væri sérstaklega gott ef Ingvi sæi sér fært um það...hann er kennari og það væri gott ef kennari labbaði útúr tíma hjá 10 ára krökkum án þess að segja neitt..og mæta svo bara aftur í næsta tíma.


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.01.2007 20:42:51 / burtur

Nei, ég skal ekki stanna!

Hræddur um það, tvær færslur yfir tvo mánuði...traust.

En já, massaði semsagt öll prófin með ásættanlegum einkunum. Eftir prófatörnina tók svo við gríðarlegt chill+gúff+tölvuleikir+stann+spilachill. Hafði það mjög gott yfir jólin, náði reyndar gjörsamlega að snúa sólarhringnum við...sem hefur háð mér talsvert þessa fyrstu viku í skólanum..sem fer hægt af stað. Vélhlutafræði, Sveiflufræði, Varmafræði 1, Framleiðsluferli og Vörustjórnun og framleiðsla eru nú á stundaskránni...þau lýta öll ágætla út.

Gera má þó ráð fyrir að næstu vikur fari talsvert í Hönnunarkeppnisdjamm, er semsagt í "liði" sem mun taka þátt í keppninni. Við strákarnir erum með byltingarkennda hugmynd af tæki sem leysa á þrautina. Við ætlum semsagt að klæða hundinn hans Gunnars í álpappír og segja að hún sé vélmenni...svo ætlum við bara að vona að hún massi þetta :S

Nýja árið...já nýtt ár dottið inn...það hefur allavega ekki farið neitt sérstaklega vel af stað (stann?), X-FM hefur horfið fram af sjónarsviðinu og því ekkert hlustanlegt í útvarpinu þessa dagana, en það er allt í lagi, því ég á Sarp og útvarpstengi fyrir sarpinn...EN ÉG FINN HANN EKKI...það fer einkar mikið í taugarnar á mér. Ég reyndi nú að finna eitthvað til að hlusta á í leiðinni í skólann um daginn...X-ið kemur ekki til greina því útvarpmennirnir þar eru að drepast, þeir eru svo eitur svalir, maður hefur á tilfinningunni að maður sé að hlusta á gaura sem eru enn í gaggó. FM er sorp, talstöðin og Rás 1 kemur ekki til greina af augljósum ástæðum...þannig að Rás 2 og Bylgjan kemur til greina...Bylgjan er reyndar frekar leiðinlegt útvarp...en það dettur inn eitt og eitt lag.
Ég ákvað því að reyna Rás 2...það var einhver morgunþáttur í gangi. Þegar ég var að hlusta var einhver gaur, augljóslega tískráðgjafi þáttarins, að babbla um tískuverslanir í Mílanó og í hvers konar litum ég ætti að vera í. Ok, þetta gæti verið ágætis efni, ef gaurinn sem væri að ræða þetta hefði verið álíka mikill hommi og Skjöldur..en svo var ekki...allavega ekki af röddinni að dæma...og hún segir margt. En já, þar sem ég höndla ekki að keyra án þess að hlusta útvarp þá held ég að Rás 2 sé, the way to go fyrir mig.

den lille ven, hann må ekki stanna nu!....EKKI STANNA! Fínn gaur

Hvernig væri samt að offa auglýsingartekjur ríkisútvarpsins...ég efa það að ég væri þá að hlusta á vortískuna í útvarpinu á morgnanna...óþolandi drasl.

Jájá, Jolli Héð á reynslu í svíþjóð hjá stórliðinu GAYS (GAIS), hann ætti að finna einhver millilappastykki þar til að skemmta sér yfir. Svo heyrist ekkert frá Hjálmari í Edínaborg, lýsi hér með eftir honum.

Jæja, segjum þetta bara gott..enginn sem nennir að lesa eitthvað lengra kafii

» 3 hafa sagt sína skoðun

09.12.2006 17:35:43 / burtur

Pása

já, ég var semsagt að muna eftir því að ég væri að reyna halda úti bloggsíðu. Anyway, kannski ástæðan fyrir því að maður er ekki að blogga er sú að maður er lærandi alla daga og öll kvöld og því ekki mikil ástæða til að blogga. Eins og staðan er núna þá er maður í Öskju, það eru svona þrjár manneskjur hérna sem eru undir fertugu, enda er þær greinar, sem eru ætlaðar þeim sem gátu ekkert í skóla, urðu þreytt á gangavarðastöðunni og ákváðu að skella sér í eitthvað gefins...t.d. jarðfræði, staðsettar hér.

Já, gaman að segja frá því að ég hitti Tinnu Mark hérna, hún er í sjúkraþjálfun. Skemmtilegt að 1/3 Siglfirðinga er einmitt saman komin hér, hún og Hössi.

En já, reikna ekki með að skrifa neitt þangað til að ég er búinn í prófum, eða þann 21. des. næstkomandi. Þó er aldrei að vita!



» 1 hafa sagt sína skoðun

14.11.2006 23:07:16 / burtur

Hræddur um það....21 árs.

jæja, kallinn mættur fyrir framan tölvuskjáinn. Enda tilefni til, maður er orðinn 21 árs. officially kominn á þrítugs aldurinn...*hrollur*. En það er sossum mörg fríðindi sem fylgja þessum áfanga...umm...t.d. má ég kaupa mér áfengi í U.S. and A og...svo er eitt ár í maður er löglegur inná Barinn. Annars vil ég bara nota tækifærið til að þakka þeim sem mundu eftir mér...fékk slatta af heillaóskum...var reyndar farinn að efast um að ég ætta einhverja kvenkyns vini...því framan af degi voru það bara gaurarnir sem mundu eftir mér. Ég er reyndar ekki búinn að fá neynar gjafir frá fjölskyldunni, en það kemur, reyndar er fékk ég aðeins eina gjöf í dag, frá .is. Svo var ég búinn að fá gjöfina frá Kára fyrir nokkrum dögum.
mmm....lambafillet í matinn..*slefar*


Margt í'essu annars. Eins og kannski flestir vita þá er maður peð í stóra tölvulánasvindlinu...en fyrir þá sem ekki vita hvað það er, þá er þannig mál með vexti að ég fékk bréf heim til mín, þess efnis að ég ætti að borga 1. afborgun af tölvuláni sem ég átti að hafa tekið í Elko. Það er nú þannig að ég tók ekkert slíkt lán, ég var reyndar búinn að heyra af þessu máli, því þrír fyrv. bekkjarbræður mínir lentu einnig í þessu. Þá er semsagt málið það að ónefndir fyrv. bekkjarbræður mínir eru sterklega grunaðir um verknaðinn, og eru semsagt að taka tölvulán hjá Elko á nöfnum gaura sem voru með þeim í bekk í grunnskóla!! Fínir gaurar.

Ég veit að við erum núna amk 5 sem höfum lent í þessu...fínt mál.


Ég er núna búinn að kæra...en það er gaman að segja frá því að til þess að kæra þurfti ég að fara í Elko og fá afrit af samningnum sem ég átti að hafa skrifað undir. Ég lít á samninginn, þá er heimilisfangið kolvitlaust (Langholtsvegur 12, hef aldrei átt heia þar), síminn kolrangur(og ég efast um að nokkur sé með þennan síma) og gaurinn sem er að gera þetta skrifaði Leifsson með ypsiloni!! Þeir eru ekki mikið að tjekka sig af þarna hjá Elko.


Nú ég fer á Löggustöðina...þá þarf ég að gefa eitthvað rithandarsýni...til þess að sýna að ég var ekki maðurinn sem skrifaði undir. Nú það virkar þannig að ég þarf að skrifa einhverjar upplýsingar efst á blaðið, nafn, heimilisfan og þannig og staðfesta það svo með undirskrift minni. Svo þurfti ég að skrifa nafnið mitt 30 sinnum (án gríns) og staðfesta það svo með undirskrift minni...þannig að ég skrifað nafnið mitt 33var sinnum á eitt blað! Gaman að'essu.

En já, ég reikna nú ekki með að heyra meira frá þessu, enda kannski málið milli Elko og þessara gaura.



En segjum þetta gott í bili.

» 6 hafa sagt sína skoðun

03.11.2006 18:42:46 / burtur

Vetr

já, ég held að það sé offically kominn vetur. Alltaf hálka á morgnanna svo var fáránlegt haglél í dag, svo ekki sé nú minnst á allar jólaauglýsingarnar, ég reyndar sá mína fyrstu auglýsingu sem myndist á jólin í lok sept! Það er fullsnemmt finnst mér.
Er að fara á Borat á eftir, shit hvað ég hlakka til, þessu gaur er bara alltof fyndinn. Reyndar allt brjálað í Kazakstan útaf honum, kannski skiljanlegt. Ég hugsa að við Íslendingar yrðum ekki sáttir ef einhver grínari myndi gera karakter sem væri frá Íslandi og talaði bara um að við geymdum konurnar okkar í búrum og sonna. Sjáið bara hvað allt var brjálað þegar einhverjar "íslenskar" flugfreyur komu í Sopranos, allt varð vetlaust.

Fyrsti innanhúsbolti Una á sunnudag, tilíða.


Annars styttist í margt þessa dagana, big 21 að detta inn, svo er ekkert svo langt í prófin, þannig að þetta er allt að gerast. Ég er nottla búinn að vera hugsandi um jólafríið síðan um miðjan okt, shit hvað ég hlakka til. Það verður sko bara tekið í tölvuleikjachill (ég er ekki enn búinn að fjárfesta í nýja manager, ég skelf mig langar svo í hann), DVD-gláp, gúff og jafnvel eyðir maður nokkrum tímum í að hanna og smíða græju fyrir hönnunarkeppnina ásam einvala liði verkfræðinema. Skil ekki fólk sem ætlar að eyða þessu í að vinna, ég meina, fríið er rétt rúmar tvær vikur (hjá mér allavega), ekki sénsa að eyða því í vinnu.

» 4 hafa sagt sína skoðun

24.10.2006 17:09:24 / burtur

nýtt útlit

já, bara nýtt útlit og sonna, svo er ég einnig búinn að uppfæra linka og ekki nóg með það heldur er ég einnig búinn að henda inn google-Eymi aftur inn (veit ekki hví hann hvarf) svo er ég einnig búinn að planta inn linka á gömul blogg, sorteruð eftir mánuðum (neðst til vinstri). Til hvers að hafa þetta? Jú sjáiði til, margir hafa verið að senda mér póst um hvernig þeir geti séð gömul blogg, margir vilja t.d. prenta þau út og setja á boli.

Ef þið munið eftir einhverju sérstöku í blogginu...en ekki hvenær ég bloggaði það...þá gúggliði. Annars getiði alltaf flett í gegnum hitt, sorterað eftir mánuðum kaffið.

Nú kunna margir að spyrja sig, hvers vegna þessar breytingar núna? Það er nú bara þannig að síðasta miðvikudag átti bloggið mitt tveggja ára ammæli! Ekki slæmt það.

Tvennt annað í þessu, í dag á Rooney ammæli (sjibbí) og svo er víst móldagurinn í dag, þannig að ég segi bara...gleðilegan móldag.

EDIT: Var að skoða gamlar færstur og sá að þegar ég hélt uppá eins árs ammæli bloggsins kom ég með örlitla tölfræði um bloggið.

Þegar bloggið var eins árs höfðu rúmlega 8200 tjekkað á blogginu eða 22,9 að meðaltali á dag
Nú hinsvegar hafa 30299 tjekkað á blogginu eða 41,2 að meðaltala á dag!! Nokkuð gott

kv. Eymi

P.S. Er bloggið: betra? eða verra?


» 9 hafa sagt sína skoðun

23.10.2006 18:04:48 / burtur

í beinni...

já, komiði sæl og veriði velkomin á beina útsendingu frá dæmatíma í tölvunarfræði, ég heiti Eymundur Sveinn Leifsson og ætla að lýsa þessum bráðskemmtilega tíma...

nú það sem hefur gerst markvert er að gellan í tímanum er buinn að beygja sig fyrir framan mig og sýna mér hennar gullfallegu heiðar...og bíðum við, er ekki eitthvað að gerast, jú, kennarinn er kominn, inn, ég endurtek, hann er kominn inn! Glæsileg innkoma hjá þessum feimna meistara.

já, ég fékk hérna mætingalistann afhentann, fyrstur nemanda og hef ritað nafn mitt á blaðið, glæsilegt þótt ég segi sjálfur frá.

HVAÐ ER AÐ GERAST, kennarinn, Hallgrímur, er farinn að lesa upp verkefnin OG DREYFA þeim, þvílík frammistaða, við skulum heyra í honum

"umm, Eymundur..."

já, ég er semsagt búinn að fá verkefnið og mitt og....jú, 10/10 góðir hálsar...ég hef ekki séð viðlíka verkefnadreyfingu síðan í Tazmaníudreyfingunni frægu.

OK, þá byrjum við, feimni kensinn hefur verkefnayfirferð og það og...jú...mér sýnist þett ætla að vera jafn óendanlega leiðinlegt og venjulega.já, tíminn er því miður á þrotum...ég vil þakka þeim sem hlýddu

nohh...við erum farinn að fara yfir gömul miðannarpróf...þetta gerir ekkert nema að minna mig á hversu lélegur ég var í fyrra! haha já, kennsinn hérna gerir grein fyrir hversu lélegur hann er í word, hann kann ekki að stækka textann! Enn bregður kennsi á leik, hann hoppar við töfluna til að benda á tölur...haha já, þetta er skemmtilegt, hann hefur semsagt gert okkur ljóst að hann sé lélegur í Word...og lítill

....

lítli hreyfing hér. Kennarinn er reyndar búinn að koma með þær góðu fréttir að Javakennslu er lokið, og mun Matlab kennsla hefjast eftir miðannarprófið.

p.s. ég vil einnig þakka Smára fyrir að leyfa mér að nota "í beinni" bloggaðferðina hans!

p.p.s. hann leyfði mér það aldrei


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.10.2006 12:44:39 / burtur

nei, nú hringi ég í Jens.

jamm, fór í MS á fös. Ég veit ekki hvort þið vissuð þetta en, ÞAÐ ER BÚIÐ AÐ FJARLÆGJA SJOPPUNA!! Hvað er það? Maður var nottla afgreiðslumaður ársins þarna, enda átti maður metið í að fá tipps, rúmar 4600 kr. Man ekki hvort Danni eða Robbi voru með mér, anyway, ætla að nota tækifærið til að lýsa frati yfir þær aðgerðir!

Rólegt um helgina. Ammæli hjá Sykra á fös, ég var designated driver (partý ljón), svo var laugardagurinn tekinn í Efnafræðidjamm og pössun hjá Jóni. Ég, Helgi og Jón eyddum semsagt laugardagskvöldinu í að spila skítakall (á ensku: African-American). Sunnudagurinn fór svo í að glápa á íþróttir. Sem minnir mig á það, hels'ekkör Liverpool. Svo er Schumi hættur og Eiður saug. Ekki nógu gott.

En já, Begga Kvaran, ég veit ekki hver þú ert þannig að hættu bara þessu rugli og hjálpaðu mér þá að tappa af!

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 13